| |
Skráðu netfangið þitt hér og fylgstu með! |
|
|
| Frá skólastjóra |
Ágætu lesendur.
Skólanámsskrá Grunnskólans á Hólmavík er samsett úr þremur hlutum þ.e. kennarahandbók, handbók nemenda og foreldra og síðan bekkjarnámsskrá.
Skólanámsskrá þarf alltaf að vera í endurskoðun annars verður hún með tímanum úrelt. Hún er í eðli sínu skráning á því sem fram fer í skólanum og nánari útfærsla á aðalnámsskrá og miðast við aðstæður og staðhætti í viðkomandi skóla.
Í þeim hluta sem hér birtist eru almennar upplýsingar um skólastarfið hér á Hólmavík.
Í fystu útgáfu námskrárinnar segir “Námsskráin á að vera virkt og auðskilið tæki til upplýsinga um skólastarfið og hún á að vera á borðum foreldra og nemenda.” Þannig á hún að geta veitt upplýsingar um skólastarfið þegar þörf krefur.
Hér á netinu eru upplýsingar knappar og samanþjappaðar en hægt er að fá prentaða útgáfu ef haft er samband í netfangið skolastjorar@holmavik.is
Kristján Sigurðsson
skólastjóri
|
|
Grunnskólinn á Hólmavík
grunnskolinn@holmavik.is
Sími 451-3129 Fax 451-3429
|
|
|
|