Lækjarskóli | FORELDRAFÉLAGIÐ

 
Velkomin:
  Fréttir
  FORELDRAFÉLAGIÐ
  Foreldrarölt 2006-2007
      LÖG FORELDRAFÉLAGS LÆKJARSKÓLA
    STJÓRN FORELDRAFÉLAGS LÆKJARSKÓLA
  SKÝRSLA FORMANNS 2004 - 2005
  FUNDARGERÐIR 2003 - 2005
  BEKKJARFULLTRÚAR
  BEKKJARFULLTRÚAR - STARFSLÝSING
  HUGMYNDABANKI BEKKJAFULLTRÚA
  VINAHÓPAR
  VINAHÓPAR - UNDIRBÚNINGUR
  FORELDRARÖLT
  FORELDRARÖLT 2005 - 2006
  FUNDUR UM VÍMUEFNAKÖNNUN
  JÓLAFÖNDUR
  FRÆÐSLUFUNDUR UM KYNIN
  MATARÆÐI GRUNNSKÓLABARNA
  STJÓRN FORELDRARÁÐS
  VITINN >
  TÓMSTUND >
  GAMLA BÓKASAFNIР>
  HEIMILI OG SKÓLI >
  LÝÐHEILSUSTÖР>
  VEFBÓKASAFN >
  HUGO >
  ÓB RÁÐGJÖF >
 
 
 
  Póstlisti skóla:
  Skráðu netfangið þitt hér og fylgstu með!
  Skrá
30.7.2010
 

Velkomin á heimasíðu Foreldrafélags Lækjarskóla.


JÓLAFÖNDUR


Jólaföndur verður í Lækjarskóla laugardaginn 9. desember milli kl. 11:00 og 14:00.

Föndurvörur við allra hæfi og í ýmsum verðflokkum verða til sölu á staðnum.

7. bekkur sér um sölu á vöfflum, drykkjum og fleira góðgæti.

Njótum jólastemmningar í skólanum okkar við föndur í góðum félagsskap, undir ljúfri jólatónlist.

Takið með ykkur: Skæri, pensla, nál og tvinna og eitthvað til að hlífa fatnaði, t.d. svuntur, gamla boli eða innkaupapoka – einnig glerkrukkur til að mála á eða líma á ef þið viljið.
MUNIÐ ! Hafið með ykkur pening, það verður ekki hægt að taka við greiðslukortum.



Foreldraröltið 2006-2007


Í vetur ætlum við í Foreldrafélagi Lækjarskóla að leggja áherslu á röltið.

Það er einróma álit lögreglu og forvarnafulltrúa bæjarins að reglulegt rölt foreldranna í bænum hafi skilað miklum árangri. Því til stuðnings nefna þeir fækkun afbrota á síðustu árum og færri mál sem koma upp í kringum unglinga, þetta má rekja til reglulegs rölts og fælingaráhrifa af því.
Röltið verður eins öflugt og við leggjum í það þess vegna er mikilvægt að gera sitt.

Nú er foreldraröltið farið af stað og er ætlunin að rölta alla föstudaga í vetur. Við hittumst kl. 21:45 í Vitanum þar sem
Vitavörðurinn tekur á móti okkur gefur upplýsingar um hvernig staðan er og hvert og hvernig röltið fer fram.
Á listanum sem fylgir er tilgreint hvaða helgar hver á að rölta og ef forföll verða, hafið þá samband við einhvern í sama bekk sem getur skipt.
Málið er í okkar höndum og ekkert annað að gera en rölta.

Kynnið ykkur listann með upplýsingum fyrir foreldra um hvaða bekkur á að rölta og hvenær með því að smella á Foreldrarölt 2006-2007 hér til hliðar.

Bestu kveðjur,
Foreldrafélag Lækjarskóla,
Hrafnhildur Garðarsdóttir
umsjónarmaður foreldrarölts
(habbag@simnet.is)



SKÓLAKÓR LÆKJARSKÓLA


Gróskan í Skólakór Lækjarskóla hefur ekki farið fram hjá neinum og er nú mikill fjöldi nemenda bæði í Litla kór og Stóra kór. Ólöf Björg tónmenntakennari hefur unnið af miklum metnaði að því að efla þennan þátt í skólastarfinu og hefur m.a. samið lag og texta skólalags Lækjarskóla sem er alltaf jafn gaman að heyra kórinn syngja.
Ólöf Björg hefur látið í ljós áhuga sinn á því að kórinn eignist búninga sem börnin klæðist þegar þau syngja opinberlega.
Það er verðugt verkefni í vetur að áhugasamir foreldrar barna í kórnum kæmu sér saman um ýmsar fjáröflunarleiðir til að þessi draumur verði að veruleika. Margar hendur vinna létt verk og verður gaman að sjá kórinn koma fram í búningunum sínum á Syngjandi jólum í Hafnarborg og víðar í framtíðinni.



Heimasíðan er í stöðugri uppfærslu þessa dagana þar sem fundargerðir þessa starfsárs eru ekki komnar inn á hana auk þess sem myndir frá Jólaföndri, Þemadögum, Öskudeginum og Vorhátíðinni eru væntanlegar.
Ef þið hafið fyrirspurn til foreldrafélagsins eða lúrið á efni sem áhugavert er að birta á heimasíðunni, þá vinsamlegast hafið samband við umsjónarmann síðunnar
Halldóru Björk


  Tilkynningar
Skrifstofan er opin 7:50 - 15:30 mánudaga - fimmtudaga,
á föstudögum er opið 7:50 - 15:00
 
Dagatal
< júlí >
M Þ M F F L S
28 29 30 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 1
< 2010 >
  Valdir tenglar
  Námsgagnastofnun
Vefbanki Valla
Námsmatsstofnun
Hafnarfjörður
Ísmennt
  Símaskrá skólans
5550585 Skrifstofa
5340595 Heilsdagssk.
5640730 Íþróttahús Haukahrauni
5655185 Faxnúmer
5550404 Vitinn